Auðurinn kúgar okkur

Punktar

Með frekju og yfirgangi kúga kvótagreifar þjóðina til hlýðni. Með lygum í auglýsingaherferðum og með gráti og gnístran talsmanna. Með gíslatöku áhafna og sveitarfélaga. Með verkbanni og Sjómannadeginum. Með Sjálfstæðisflokknum og Morgunblaðinu. Með Ólafi Ragnari Grímssyni og ótakmörkuðu fjármagni. Fólk skelfur af hræðslu um allt land. Ríkisstjórnin hlýddi ofurvaldinu og lagði fram lagafrumvarp um varanlega leigu auðlindarinnar fyrir skít og kanil. Í stað sáttar við fólkið reynir hún árangurslaust að sættast við bófana. Þar með brestur sjálf forsenda ríkisstjórnar, sem miklar vonir voru bundnar við.