Þótt þúsundir manna séu ærir út af IceSave, er það bara skuld, sem Davíð lofaði að greiða, og verður greidd. Hún er ekki einu sinni þáttur í vanda líðandi stundar. Niðurskurður velferðar og skattahækkanir stafa ekki að neinu leyti af IceSave. Hærri höfuðstóll og hærri vextir skulda stafa ekki að neinu leyti af IceSave. Allur vandi líðandi stundar og næstu missera stafar af gengishruni og gjaldþroti Seðlabankans og bankanna. Ríkissjóður pungaði út hundruðum milljarða, sumpart fé frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Hin brjáluðu þúsund manna ættu að líta á nærtækar orsakir vandamála sinna.
