Biðraðir eftir mat eru fráleitar og ástæðulausar. Samtök ríkis og góðgerða eiga að gefa út greiðslukort fyrir þá, sem skortir fé fyrir mat. Þau eiga að semja við Bónus og Krónuna um að taka þessi kort gild fyrir aðrar vörur en sælgæti, snakk og goss. Mánaðarlega á síðan að leggja inn á þessi kort sem nemur fjölskyldustærð. Ef ástæða er til að hafa sérstakan lager fyrir gefnar vörur, á hann að vera opinn alla virka daga og taka við þessum kortum. Biðraðirnar skaða sjálfstraust fólks og eru þar að auki að hálfu skipaðar fólki, sem ekki þarf aðstoð. Svo sem fólki, er kemur beint frá Kanarí.