Andri Snær er málið

Punktar

Mér sýnist Guðni Th. vera fallinn á tíma út af japli, jamli og fuðri um framboð sitt. Mér sýnist fésbókin sýna, að Andri Snær sé sá, sem muni fella pólitíska kameljónið Ólaf Ragnar. Þið framsóknarmenn og aðrir þeir, sem hatið náttúru landsins, verðið bara að sætta ykkur við það. Þetta skýrist náttúrlega betur næstu daga, þegar alvöru fylgiskannanir fara að birtast. Fólk er allt í einu búið að fá nóg af íslenzkum pólitíkusum, hræsni þeirra og lygi, sjónhverfingum og spillingu. Þar á meðal er fólk búið að fá nóg af innantómu blaðri Ólafs Ragnars. Hann er bara til leiðinda, nema sem grínfígúra í bandarískri músík.