Andi gleðilegra jóla

Greinar

Víða um Vesturlönd verður jóladýrðin að þessu sinni ekki eins mikil og venjulega. Vegna olíuskortsins eru ljósaskreytingar takmarkaðar og húsahiti lækkaður. Samt ætti að vera óhætt að spá því, að gleði jólahaldsins verði ekki minni en venjulega hjá þeim þjóðum, sem búa við olíuskortinn. Ef til vill komast þær nú að raun um, hve lítils virði hinn ytri umbúnaður jólanna er, og hve mjög hann hneigist til að skyggja á innra eðli jólanna. Má þá segja, að olíuleysið sé ekki með svo öllu illt, að ekki boði nokkuð gott.

Hér á Íslandi er sums staðar skortur á rafmagni þessa dagana. En þau óþægindi eru smávægileg í samanburði við það, sem nágrannar okkar á Vesturlöndum búa við. Að þessu leyti eins og öðru höldum við okkar jól fjarri öllum vandamálum heimsins. Úti í heimi ganga geðsjúklingar lausir, kalla sig skæruliða og myrða fólk í hrönnum. Enn er barizt í Indókína og friður er ótryggur í Mið-Austurlöndum.

Þetta eru aðeins örfá af vandamálum líðandi stundar. En mannkynið á einnig við önnur og jafnvel stærri vandamál að stríða, vandamál, sem legið hafa í leynum, en eru nú að koma fram í dagsljósið. Mörg þeirra snerta okkur jafnt og aðrar þjóðir. Hótel Jörð er að drabbast niður í mengun og rányrkju. Auðlindir eru að þorna og fiskistofnar að rýrna. Og síðast en ekki sízt er fólksfjölgunin allt of mikil á þessu litla hóteli.

Flest er þetta fjarri hugum Íslendinga. Það er stundum þægilegt að búa á hjara veraldar, þótt menn kvarti stundum um, að landið sé næsta óbyggilegt. Í efnalegu tilliti erum við með lánsamari þjóðum. Við vitum samt innra með okkur, að auðurinn hefur ekki fært okkur neina gleði né neinn frið umfram hina fátæku forfeður okkar í landinu.

Dagurinn í dag er dæmigerður nútímadagur. Þetta er mesti verzlunardagur ársins. Síðan taka við miklar annir við annan jólaundirbúning og þar á eftir jólin sjálf með jólamat og jólagjöfum. Hin veraldlega dýrð jólanna er mikil, en um hina andlegu dýrð er minna vitað. Óhófleg svartsýni er samt ekki við hæfi, því að jólahald hlýtur jafnan að endurspegla lífskjör og þjóðlífshraða hvers tíma.

Það verður ekki aðeins verzlunarfólkið, sem gengur þreytt til hvílu í kvöld. Þetta eru dagar streitu hjá miklum hluta þjóðarinnar. Að þessu sinni hagar þó svo til, að frídagarnir eru óvenju margir, bæði um jól og áramót. Menn ættu því að geta hvílzt betur en venjulega og átt betri kost á að öðlast frið og rósemi hugans á þessari höfuðhátíð ársins.

Í von um, að hinn rétti jólaandi megi sem víðast ríkja, óskar dagblaðið Vísir lesendum sínum og landsmönnum öllum GLEÐlLEGRA JÓLA

Jónas Kristjánsson

Vísir