Við erum búin að fá meira en nóga peninga hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndunum. Verðum ekki greiðsluþrota næsta hálfa annað árið. Þá finnst nokkrum bófum innan og utan Alþingis upplagt að segja lausu samstarfinu við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Þetta er dæmigert fyrir siðleysi þjóðarinnar, sem grasserar mest á Alþingi. Fyrst á að láta útlendinga hjálpa okkur og síðan á að sparka þeim. Ummæli íslenzkra þingmanna eru þýdd á útlenzku. Þá verða menn sannfærðir um, að Íslendingar séu bófar upp til hópa og til einskis nýtir. Allra sízt beri að lána digurbarkalegum Íslendingum túskilding.
