Daglega sýnir fjármálaeftirlitið vanhæfni sína. Það ræður brennuvarga í mikilvægar eftirlitsstöður nýju bankanna, yfirmenn fjárglæfranna í gömlu bönkunum. Það skipar pólitískt lituð bankaráð eins og í gamla daga. Þetta kemur til viðbótar ábyrgð fjármálaeftirlitsins á sjálfu bankahruninu. Sú ábyrgð verður ljósari með degi hverjum. Eftirlitið lék sér að excel-skjölum um eiginfjárstöðu meðan bankarnir flugu á hausinn. Allar tölur í excelnum voru ímyndaðar. Mestu mistök ríkisstjórnarinnar í hruninu eru að fela hinni furðulegu stofnun alræðisvald í brunaliðinu. Sjálfum brennuvörgunum.
