Allt í fínu að ljúga

Punktar

Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur finnst í lagi að reyna að ljúga sig út úr hvers kyns vanda. Borgarfulltrúi Framsóknar sagði DV hafa farið rangt með ummæli sín og eiginmanns síns, Svans Guðmundssonar, Mr. Camp Knox. DV birti símtölin, sem sýndu blaðið hafa farið með rétt mál. Guðfinna og Svanur voru að reyna að nota stöðu Guðfinnu til að troða gámum fyrir fátæklinga upp á Reykjavíkurborg. En Guðfinna lýgur ekki bara, heldur skilur hún ekki hugtakið spilling. Í Framsókn er talið eðlilegt, að hjón „hjálpist að“ á sama hátt og mafían. Það endar með því klassíska kjörorði, að fólk „eigi ekki að líða fyrir það að vera Framsókn“.