Álftanes er Ísland

Punktar

Kaffistofa Pressunnar ber saman Álftanes og Ísland, gjaldþrota fyrirbæri. Eftirlitsnefnd sveitarfélaga leikur hlutverk Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og ríkissjóður hlutverk Evrópusambandsins. Flottur samanburður frá orði til orðs. Fyrrum oddviti hreppsins er í sömu afneitun og fyrrverandi ríkisstjórn í víðara samhengi. Hefur allt á hornum sér, sakar utanhreppsaðila um vonzku. Vill ekki spara neitt. Er bara sami lúðinn og þjóðin sjálf. Gersamlega úti að aka í pólitík og neitar að borga. Álftanes er Ísland í hnotskurn. Fyrirlítur utanhrepps-stofnanir og biður þær jafnframt um að hjálpa sér.