Í hernum fleygja allir sér á jörðina, þegar liðþjálfinn gargar. Þannig forða þeir sér undan skothríð óvina. Þeir, sem ekki trúa liðþjálfanum, líta kringum sig að forsendu gargsins. Þeir falla, en hinir lifa. Liðþjálfinn er skipstjóri á sinni skútu. Menn hafa efasemdir um stjórnina, en hlýða skilyrðislaust í eldlínunni. Síðar má ræða efasemdirnar. Bóndasonur vildi ekki fara af baki, þegar aðstæður kröfðust, að lausu hrossin væru róuð niður. Hann hafði ekki lært það í sveitinni og tók ekki mark á fararstjóra af malbikinu. Hann var til vandræða. Var aldrei tekinn aftur með í ferð.
