Tími er kominn til að handtaka Má Guðmundsson seðlabankastjóra og koma honum í meðferð fyrir spilasjúklinga. Í gær brenndi hann evrum fyrir hálfan milljarð króna í spilavíti gengisskráningar. Hann kallar þetta “kröftug inngrip Seðlabankans”. Ef hann verður áfram látinn afskiptalaus, eyðir hann gjaldeyrisvarasjóðnum. Sá er raunar ekki eign bankans, heldur fenginn að láni hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og víðar. Már átti að láta krónuna í friði, hún hlaut að falla í kjölfar lægri stýrivaxta bankans. Lækkunin stöðvaðist að vísu, en liggur áfram í pípunum. Aldrei má brenna peninga.
