Aldrei, aldrei, aldrei

Punktar

“Ég vona að Ísland gangi aldrei í Evrópusambandið” segir ráðherrann Gunnar Bragi Sveinsson við Bloomberg. ALDREI, minna má það ekki vera. Snillingurinn í ráðuneytinu veit ekkert um aðstæður eftir fimm eða fimmtíu ár. Stjórnlaus í hatri á heimshlutanum, sem færði mannkyni lýðræði og hefur enn forustu í lýðræði. Ólafur Ragnar Grímsson hefur kennt honum að elska Kína. Hún virðist orðin eins konar Sovétríkin við hjarta ríkisstjórnar snillinganna. Ruglið í Ólafi Ragnari, Sigmundi Davíð og mannvitsbrekkunni er komið út yfir allan þjófabálk. Þeir gefi sig fram, sem kusu þessa snillinga til að spila fífl.