Æsilegt tilboð brennuvarga

Punktar

Ríkisstjórnin og Seðlabankinn bjóða ykkur átján þúsund manna atvinnuleysi eftir áramótin. Brennuvargarnir bjóða ykkur 30% verðbólgu á næsta ári. Landráðamenn háyfirstéttarinnar verðfella íbúðir ykkar um helming. Óvinir þjóðarinnar hafa þegar rýrt krónur ykkar niður í helming og ætla senn að rýra þær niður í fjórðung. Samkvæmt spá Seðlabankans. Ekkert af þessu er svo frábært, að það borgi sig að fá lán hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Það fer bara í að gefa auðfólki færi á að flytja fé sitt úr landi, samanber Argentínu. Skrítið er, að stjórnarandstaðan skuli ekki spyrna gegn láninu.