Að skrifa eða skrifa ekki

Punktar

Samskipti við spunakarla eru marklaus. Þeir segja bara það, sem hentar í hverri stöðu. Nú segir Urður Gunnarsdóttir spunakarl, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi ekki skrifað bréf sitt til brezkra þingmanna. Algengt er, að ráðherrar hafi höfunda á sínum vegum. Ráðherrarnir bera samt ábyrgð á því, eins og þeir hafi skrifað það sjálfir. Hafi sendiherra Íslands í Bretlandi flutt bréfið fyrir hönd ráðherrans, gildir það sem bréf hennar. Sendiherrann flutti það munnlega og afhenti það skriflega í hópi brezkra þingmanna. Þýðingarlaust er að neita, að ráðherrann hafi skrifað bréfið.