Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir kann ekki að telja. Hún sá um það bil 100 manns og taldi upp í átta. Það er minna en hestar Andrésar á Kvíabekk, sem kunnu að telja upp í átján. Þeir byrjuðu að kumra, þegar átjándi bagginn kom inn í fjós. Hann var ætlaður þeim. Hestarnir hefðu líka staðið sig betur en Þorbjörg Helga við að stjórna Reykjavík. Útilokað er að stjórna eins flóknu apparati og borginni með að kunna að telja upp í átta. Lengi hefur verið haldið fram greindarskorti hjá borgarfulltrúum Sjálfstæðis. Hefur nú verið staðfest í tölum. Getur flokkurinn ekki bara fengið sér hesta í framboð?
