Forsetarnir Mamoud Amadinejad í Íran og Hugo Chávez í Venezúela hafa gaman af að stríða Bandaríkjunum. Sá fyrri hefur nú síðast boðizt til að hafa eftirlit með bandarísku kosningunum. Útkoman úr atkvæðavélunum hefur reynzt vera ótraust og endurtalning ókleif. Forsetarnir tveir haga sér undarlega á alþjóðlegum vettvangi og verða seint lýðræðislegar fyrirmyndir. En það segir sögu um niðurlægingu Bandaríkjanna, að gamansamir þrjótar í þriðja heiminum geta beitt þau háði og spotti. Siðferðislömuð Bandaríkin geta ekki lengur verið með predikanir um gott og vont stjórnarfar í öðrum löndum.
