Þá höfum við það. Jónína Bjartmarz er spillt, enda framsóknarkerling. Hún hefur útvegað kærustu sonar síns ríkisborgararétt eftir fimmtán mánaða dvöl. Tveimur vikum fyrir kosningar. Aðrir þurfa að bíða í sjö ár. Svo virðist, sem Jónína hafi framið glæpinn með aðstoð Hildar Dungal, forstjóra Útlendingastofnunar. Ég hef haft efasemdir um dómgreind þess forstjóra frá því er ég fyrst heyrði í henni í sjónvarpi. Hún hefur gengið fram af hörku gegn útlendingum, en hefur nú gert undantekningu vegna hagsmuna ráðherra. Þetta er Ísland í dag. Vonandi linnir þessari Framsókn eftir kosningar.
