William Pfaff segir í International Herald Tribune á, að reynslan bendi ekki til, að bandarískir hermenn verði látnir svara til saka fyrir morðárás þeirra á ítalska sendimenn, sem voru að flytja frelsaðan gísl til flugvallarins í Bagdað. Hann minnir á, að bandarískir herflugmenn voru að leika sér árið 1998 á ógnarflugi í dölum Ítalíu, skáru á strengi kláfs og drápu fjölda farþega. Þeir voru síðan dregnir fyrir dóm í Bandaríkjunum og algerlega sýknaðir. Hið sama verður áreiðanlega uppi á teningnum að þessu sinni. Bandarískir hermenn eru álitnir ósnertanlegir.
