Fréttaálfar út úr hól

Punktar

Furðulegur er fréttaflutningur hefðbundinna fjölmiðla af meintri einræktun barns á vegum sértrúarflokks. Enginn hefur séð nein sönnunargögn um þetta, hvorki ritstjórarnir né fréttamennirnir. Enginn hefur séð einræktaða barnið, hvorki ritstjórarnir né fréttamennirnir. Enginn vísindamaður, sem spurður hefur verið álits, trúir orði um einræktunina. Samt halda fjölmiðlar áfram að tyggja ruglið rétt eins og nú sé fyrsti apríl og hafi staðið vikum saman. Fred Grimm skrifar í Miami Herald um bullið í blöðunum og sjónvarpinu. Hann spyr, hvort starfsbræður sínir séu kannski einræktaðir álfar út úr hól.