Þrælarnir halda kjafti

Punktar

Mikið er eftir af þrælnum í vitund Íslendinga. Sárafáir gera athugasemdir við hækkun mánaðarlauna pólitíkusa og yfirkontórista um hundrað þúsund á mánuði. Nákvæmlega þeir, sem hæst tuða um of há laun almennings, láta nefnd jafningja úthluta sér margföldum upphæðum. Svona verður það alla tíð, þangað til þjóðin gerir uppreisn gegn kvölurum sínum. Eigi að síður eru stéttir pólitíkusa og yfirkontórista þær, sem verst standa sig í þjóðfélaginu. Pólitíkusarnir eru þarna auðvitað fyrir ræfildóm þrælanna. Og yfirkontóristarnir eru beinlínis ráðnir úr hópi óvinnufærra flokksómaga. Hinir kúguðu halda áfram að bugta sig.