Sumt gerum við rétt. Við höfum tekið á móti 20% fjölgun túrista á ári, án þess að innviðir bresti. Eigum frábæra kokka, sem halda uppi merki okkar með sæmd. Matreiðsla er almennt fín. Gestamóttaka er einnig með sóma. Alltaf eru það sömu örfáu gistihúsin, sem draga okkur niður, Travel Inn, Adam og Tunguvegur. Brýnt er að borga eigendum þeirra fyrir að taka þau úr rekstri. Hvenær sem ég fletti í umsögnum túrista á TripAdvisor hlýnar mér um hjartað. Íslendingar hafa lyft grettistaki í ferðaþjónustu og geta örugglega tekið við þeirri aukningu, sem enn er spáð. Ferðaþjónusta er framtíðin, en þar þarf þó að greiða betri laun.
