Sjónhverfing Illuga

Punktar

Illugi Gunnarsson hyggst rýra gildi stúdentsprófs með því að stytta námið niður í þrjú ár. Mun valda lakari undirbúningi fyrir háskólanám. Raunar eru nú þegar gerðar viðbótarkröfur í sumum námsgreinum háskóla. Stúdentsprófið er ekki fullt skírteini til aðgangs að æðri menntun. Eftir niðurskurð Illuga munu inntökupróf verða almenn í háskólum. Fyrst hér heima og síðan erlendis, þegar íslenzkir námsmenn leita þangað. Þannig verður stúdentsprófið marklaust og sparnaðurinn af styttingu námsins enginn. Gegn góðra manna ráðum hefur menntaráðherra komið af stað dæmigerðum sjónhverfingaleik. Enn eitt flumbruverk ríkisstjórnarinnar.