Sigmundur Davíð Gunnlaugsson keypti Birki Jón Jónsson úr efsta sæti lista Framsóknar á Norðurlandi eystra. Væntanlega með stuðningi Kögunar, er keypti fyrir hann formennskuna. Enn er kaupverð ekki upplýst. Sigmundi var ekki farið að lítast á lágar tölur Framsóknar í könnunum um fylgið í Reykjavík. Nægja ekki til að skola inn þingmanni. Hann vildi því flýja í öruggt skjól hins rótgróna Framsóknarkjördæmis. Höskuldur Þórhallsson komst að plottinu og lýsti framboði í efsta sæti degi fyrir yfirlýsingu seinheppins formanns. Við eigum svo eftir að sjá, hversu miklu fylgi formaðurinn tapar þar nyrðra.
