Fylgismenn félagslegs rétttrúnaðar gæla við hugmyndir um að hafa vit fyrir fjölmiðlum. Allsherjarnefnd Alþingis vill, að “fjölmiðlanefnd hafi sérstakt eftirlit með fjölmiðlum í aðdraganda kosninga”. Eitt kallar á annað. Næst verður nefndinni falið að hafa eftirlit með kynjaskiptingu meðal viðmælenda fjölmiðla. Síðan fær hún að hafa eftirlit með orðalagi glæpafrétta, svo að uppruni glæpafólks komi ekki fram. Þá verður röðin komin að eftirliti með fyrirsögnum og umbroti, svo þar komi ekki fram mismunun milli hópa. Flýtir færslu miðlunar frá hefðbundnum fjölmiðlum yfir á félagsmiðla internetsins.
