Kvótinn: Nú er lag

Punktar

Kvótagreifar hafa gengið fram af þjóðinni með frekju og yfirgangi, hávaða og þokulúðrum. Aldrei hefur verið meiri stuðningur við þjóðareign á kvóta en einmitt nú. Tækifæri er því til að efna loforð stjórnarflokkanna um fyrningu kvóta og uppboð veiðiheimilda. Gallinn er arfavont frumvarp, sem staðfestir einkaeign kvótans næstu tuttugu ár. Einhverjir þurfa að gera fyrningu kvóta og uppboð veiðiheimilda að hornsteini næstu kosningabaráttu. Þurfum nýjan þingmeirihluta með þjóðarvilja, sem kiknar ekki undir ofurmætti kvótagreifa og þýfis þeirra. Of lengi hafa kvótagreifar brennt auðlindaarði þjóðarinnar.