Leyndarhyggja Matvælastofnunar

Punktar

Matvælastofnun er dæmigerð ríkisstofnun, sem þjónar ekki almenningi. Hefur samt skyldum að gegna. Til dæmis á hún að kanna samræmi milli innihalds og merkinga fæðubótarefna. Niðurstaðan af 53 vörum var sú, að tvær voru í lagi og 51 í ólagi. Mestu máli skiptir, að fólk fái að vita, hvaða vörur eru í lagi og hvaða vörur ekki. Á þann hátt einan þjónar Matvælastofnun hlutverki sínu. Enga hagnýta þýðingu hefur að birta þrjár tölur. En þarna er enn ein birtingarmynd leyndarhyggju ríkisins. Stofnunin telur birtingu gagna geta komið sér illa fyrir framleiðendur. Gögnum málsins er því haldið leyndum.