Beztu vinir Ólafs Ragnars Grímssonar teygja krumluna inn í þjóðlíf okkar. Kínverska sendiráðið reyndi að stöðva sýningu bíómyndarinnar “Þegar drekinn gleypti sólina”. Kvartaði við bíóhátíðina og utanríkisráðuneytið. Senn kemur röðin að næstbezta vini Ólafs Ragnars. Rússland þykist hafa ýmissa hagsmuna að gæta og tekur óstinnt upp afskiptasemi. Forsetinn var nýlega í heimsókn hjá öflugasta glæparíki heims og í því ríki, sem fóstrar öflugustu mafíuna. Ástarsambönd forsetans í austri minnir á ástarsamband Davíðs Oddssonar. Hann fullyrti, að hann hefði fengið þúsund milljarða frá seðlabanka Rússlands.
