Þeim þóknast ekki lögin

Punktar

Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafa sérstæða sýn á lagatækni. Landsdómur ónáðar þau, enda eru þau í röð þeirra, sem reyndu að maka krókinn á sápukúlunni. Bjarni í vafningum og Þorgerður í kúluláni. Þau segja lögin um Landsdóm úrelt. Engin lög eru úrelt, fyrr en Alþingi setur ný lög, sem víkja gömlum lögum til hliðar. Enn eru í gildi ótal ákvæði úr Jónsbók og Járnsíðu. Bjarni og Þorgerður hafa aldrei lagt til, að lögum um Landsdóm verði breytt. Þau gilda, þangað til þeim verður breytt. Fráleitt er, að fjárglæfrafólk stjórnmála kalli úrelt þau lög, sem ekki þóknast þeim.