Ókristileg Fíladelfía

Punktar

Ef ætla mætti kristilegt viðhorf til slátrunar lamba, fælist það í að láta litlu, sætu lömbin lifa. Svo er því miður ekki. Í miðausturlöndum gilda aðferðir við slátrun, sem eru sameiginlegar stóru trúarbrögðunum. Klerkar hafa þó ekki komizt á fépynd við að blessa drápin eins og kollegar þeirra. Rabbíar sjá um, að kjöt sé kosher og múftar sjá um, að kjöt sé halab. Ef til vill fær þjóðkirkjan bisness í slátrun. Hefur þó látið halab slátrun í friði, enda sannkristin. En öfgafull Fíladelfía lætur æsast. Hefur hrætt Sláturfélagið til hlýðni við ofsa Fíladelfíu, sem er ókristilegt félag.