Ríkið rekur nokkrar óþarfar stofnanir á sama tíma og ríkisstjórnin dregur úr velferð fólks. Varnarmálastofnun er enn á lífi, þrátt fyrir gefin loforð. Leggja má niður fjölmenna Útlendingastofnun og setja í staðinn upp símsvara, sem segir Nei. Leyndarstofnunin Persónuvernd er skálkaskjól þeirra, sem hafa óhreint mjöl í pokahorninu og vilja fela gerðir sínar. Flestir sendiherrar Davíðs Oddssonar eru enn á fullum launum, af hverju eru þeir ekki allir reknir strax? Í hinni ónýtu stjórnsýslu er innbyggð vernd embættismanna, sem dauðþreytt ríkisstjórn ræður ekki við. Í staðinn sker hún niður þjónustuna.
