Þjóðin vill bara ruglið
Kosningabaráttan í Reykjavík snýst um fögnuð við ruglinu í Jóni Gnarr. Um ísbjörn í Húsdýragarðinum, tollstöðvar á landamærum Reykjavíkur og Alls konar handa aumingjum. Tilraunir fjórflokksins til að koma að alvörumálum hafa alveg mistekizt. Kjósendur líta á slík mál sem grín og líta á grínið sem alvöru. Eitt kosningamál hefur vakið athygli mína. Það er loforð Samfylkingarinannar um að beita Árósa-aðferðinni við að minnka atvinnuleysi í borginni. Finnst það rökrétt og spennandi tillaga. En fáir nenna að hlusta á Dag B. Eggertsson. Núna er ekki tími alvörunnar, þjóðin vill bara ruglið.
