Stjórnendur og eigendur banka og gullætur eru til meðferðar hjá sérstökum saksóknara. Pólitíkusar eru til meðferðar hjá þingnefnd, sem skoðar skýrslu sannleiksnefndar. En hvar eru til meðaferðar embættismenn og endurskoðendur? Sannleiksskýrslan sýndi, að ráðuneytisstjórar helztu ráðuneyta voru óhæfir til starfa, Baldur Guðlaugsson og félagar. Baldur lyfti aldrei litla fingri til neins nema til að bjarga sínum peningum. Hún sýndi líka, að stærstu endurskoðanir landsins eru fullar af ofurbófum. Hvar eru mál þessara aðila til meðferðar í kerfinu? Ég er að tala um fleiri en Davíð og Jónas Friðrik.
