Bandaríkin eru ekki lýðræðisríki, heldur auðræðisríki. Fjármagnið kostar þingmenn og stýrir þeim. Kjósendur eru vofur, annar hver treystir Fox bezt til að segja réttar fréttir. George W. Bush fer frá og Barack Obama tekur við, en ekkert gerist. Allt er við það sama. Olíufélög og lyfjafélög, hergagnaframleiðendur og bankar stjórna þjóðfélaginu áfram. Svo sterk eru áhrif auðsins, að tími frambjóðenda í pólitík fer 90% í að leita stuðnings hans. Aðeins 10% fer í að tala við almenning. Fólkið í vestri gerir sér ekki grein fyrir, að það sjálft er gersamlega valdalaust. Alveg eins og hér.
