Óviðráðanleg leppurinn

Punktar

Hamid Karzai, leppur Bandaríkjanna í Afganistan, fór að hegða sér undarlegar eftir kosningarnar í ágúst í fyrra. Þar framdi hann ein mestu kosningasvik mannkynssögunnar. Eftirlitsmenn bentu á það, en hann fékk samt að lafa í skjóli Bandaríkjanna og á ábyrgð þeirra. Nú segir hann eftirlitsmennina sjálfa hafa framið kosningasvikin. Nafngreinir fulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins. Þetta eru viðbrögð hans við kröfum um minnkun spillingar, til dæmis fíkniefnakóngsins, bróður hans. Leppar Bandaríkjanna eru oft svo verndaðir, að þeir verða óviðráðanlegir.