Næst viljum við leka um Össur

Punktar

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er nánast reiður yfir leka bandrískra gagna um íslenzka ráðamenn. Samt er leki bara partur af nútímanum. Fólk vill vita, hvað gerðist í reykfylltum bakherbergjum. Lekinn þjónar þörf fólks fyrir upplýsingar, sem Össur vill ekki, að leki út. Þannig mun flest leka út í dagsljósið um síðir. Það er auðvitað ótækt að mati plottara og makkara. Þeir leggja áherzlu á, að finna þá, sem leka, og refsa þeim. Þeir hafa hins vegar minni áhuga á að leysa vandamálin, sem lekinn fjallar um. Össur talar fyrir hönd plottara og makkara. Næst þurfum við fá að heyra leka um hann.