Kristján Ragnarsson var lengi forstjóri grátkórs útgerðar. Grét jafnan, hvar sem hann kom fram. Þannig stjórnaði hann landinu áratugum saman. Útvegsmenn löptu jafnan dauðann úr skel. Eftirmaður hans grætur ekki eins sannfærandi. Ber velsældina með sér. Því hefur kórstjórnin verið flutt frá landssambandi útvegsmanna til Samtaka atvinnulífsins. Þar hefur Vilhjálmur Egilsson verið gerður að kórstjóra. Grætur á sannfærandi hátt, hvar sem hann kemur fram. Ríkisstjórnin er vond við kórinn, rak hann úr Stöðugleikasáttmálanum, segir Vilhjálmur. Jafnvel útibústjóri hans í Alþýðusambandinu horfir hissa á hann.
