Ef bankarnir afskrifa kúlulán starfsmanna og gæludýra, verða þeir líka að afskrifa lán almennings upp í topp. Þeir geta ekki sérvalið hóp skuldara og strikað yfir hann. Höfða þarf mál gegn Finni Sveinbjörnssyni og Ásmundi Stefánssyni og Birnu Einarsdóttur, ef þau telja sig geta það. Bönkunum voru gefin hundruð milljarða af fé skattgreiðenda. Forsenda var, að þeir legðust ekki í siðleysi. Eitt skal yfir alla ganga. Bankarnir segjast ekki hafa ráð á að afskrifa lán almennings upp í topp. Þá hafa þeir ekki heldur ráð á að afskrifa lán starfsfólks og vildarvina upp í topp. Ekki afskrifa kúlulánin!
