Engin skilyrði samþykkt

Punktar

Ísland samþykkir ekki hollenzk skilyrði fyrir framhaldi á samningum. Haldi Holland fast í það, verða engar frekari viðræður um IceSave. Ríkisstjórnin lýsir bara yfir, að hún vilji borga margtuggið IceSave lágmark. Og borga það af innistæðum IceSave, sem sumpart hafa verið frystar. Einnig þarf stjórnin að koma þessum skilaboðum til allra, sem máli skipta. Bretland og Holland lánuðu Íslandi ekki fé, heldur ákváðu einhliða að afgreiða skuldbindingar umfram lágmark. Kröfur í búið af greiðslum umfram lágmark eru ekki eins réttháar og kröfur upp að lágmarki. Holland borgi sjálft frumhlaup sitt.