Gordon Brown er geðveikur

Punktar

Augu Breta eru að opnast fyrir því, að forsætisráðherra þeirra er ekki heill á geðsmunum. Reiðiköst Gordon Brown eru orðin víðkunn. Hann grýtir dauðum hlutum og beitir starfsfólk andlegu ofbeldi. Hegðun hans samrýmist ekki háu embætti. Ofsafengnar geðsveiflur henta ekki forsætisráðherra. Menn eru farnir að skrifa bækur um þetta, samanber The End of the Party eftir Andrew Rawnsley. Gordon Brown er orðinn að vandræðamanni flokksins í aðvífandi þingkosningum í Bretlandi. Brezkir kjósendur munu hafna honum. Sumir Skotar munu sjá eftir honum. En tæplega verða margir Íslendingar í hópi syrgjenda.