Þau réðu fólk gamla tímans

Punktar

Ef Jóhanna og Gylfi og Steingrímur deildu skoðun þjóðarinnar á bankamálum, hefðu þau hagað sér öðruvísi. Hefðu sett heiðarlega aktívista í bankaráðín, í Fjármálaeftirlitið og í Bankasýslu ríkisins. Hefðu beðið þá um að sauma að stjórnendum bankanna. Í þess stað var ráðið fólk gamla tímans. Fólk sem tengdist mismunun og klíkuskap í fjármálum. Fólk, sem skildi ekki, að brýnt var að breyta um hugarfar á æðstu stöðum fjármálaheimsins. Í eðli sínu eru Jóhanna og Gylfi og Steingrímur fólk gamla tímans, fólk fjórflokksins. Þess vegna mistókst því að láta rætast draum þjóðarinnar um heiðarlega banka.