ExxonMobil er í herferð gegn því, að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum. Frá því segir á forsíðu Independent í dag. Olíurisinn felur hægri sinnuðum ráðgjafarstofum að leita uppi sérvitra fræðimenn, sem eru tilbúnir að semja skýrslur af því tagi. Hér á landi er Hannes Hólmsteinn Gissurarson málsvari þessa sjónarmiðs. Það er í 1% minnihluta meðal fræðimanna í loftslagsmálum. Nær samt mikilli dreifingu, því að vasar olíurisans eru ótæmandi. Blásnar eru út villur í mati á bráðnun jökla í Himalaya og klaufalegt orðalag í tölvupósti. Allt er það til að gefa olírisanum svigrúm til að menga meira.
