Þjóðrembd er gagnrýni Ögmundar Jónassonar á skrif Þórólfs Matthíassonar í Aftenposten í Noregi. Ögmundur virðist telja jaðra við landráð að skrifa hlutlaust um ágreining Íslands við umheiminn. Þórólfur verði sérstaklega að taka fram, að framferði ríkisstjórna Bretlands og Hollands sé óviðeigandi. Þórólfur verði að efast um réttmæti gerða þeirra. Hann verði að afneita ábyrgð Íslands. Annars sé hann ekki sannur Íslendingur. Ögmundur er eins og margir fleiri afneitarar kominn út af kortinu í þjóðrembunni. Rökræðir ekki skoðanir Þórólfs. Metur þær bara út frá þjóðrembdu viðhorfi afneitunar.
