Klukkunni verður seint breytt hér á landi. Við erum á Greenwich-tíma, sem auðveldar samskipti við útlönd. Samkvæmt hnattstöðunni ættum við að vera klukkutíma seinna á ferðinni. Betra væri fyrir syfjað skólafólk, kveldúlfa og næturhrafna að hafa meiri svefntíma á morgnana. En það má lagfæra á annan hátt en að breyta klukkunni. Hefja má skóla klukkutíma seinna en nú er gert og ljúka þeim klukkutíma síðar en nú. Lina má togstreitu líkamsklukkunnar og vekjaraklukkunnar á þann hátt. Án þess að kasta frá sér kostum þess að vera á Greenwich-tíma. Við ættum ekki að byrja í skólunum fyrr en níu-hálftíu.
