Ólafur Ragnar á útrásarþingi

Punktar

Enn einu sinni er hátíð alþjóða auðvaldsins er haldin í Davos í Sviss í þessari viku. Þótt allar kennisetningar hátíðarinnar um bankafrelsi og flæði fjármagns hafi reynzt hjóm eitt. Þar mæta helztu útrásarvíkingar heimsins með spámönnum sínum og galdrakörlum. Áður mættu þar Davíð Oddsson og Geir H. Haarde. Þá voru þeir topparnir á íslenzkum þætti þessarar stefnu, þótt þeir séu nú hrjáðir og smáðir. Í þetta sinn er það Ólafur Ragnar Grímsson forseti sem mætir. Verður þar næsta upplitsdjarfur eftir synjun laganna um IceSave ríkisábyrgð. Það hæfir vel, að klappstýra útrásarinnar sé fyrst á vettvang.