Gegnsæi gegn bankaleynd

Punktar

Alþingi þarf strax að setja lög um gegnsæi peningastofnana. Þau hljóði svo: 1. Hvers kyns bankaleynd er bönnuð. 2. Engin undantekning er á þessu. 3. Öll sala eigna í meðferð banka skal fara fram fyrir opnum tjöldum. 4. Brot valdi fangelsi. Brýnt er að setja lög, því að bönkum er enn stjórnað af krimmum. Sem skipa jafnvel sjálfa sig bankastjóra og í stjórnir fyrirtækja. Siðvæðing samfélagsins hefur brotnað á virkisveggjum bankanna. Þeir eru enn við sama heygarðshornið. Flagga bankaleynd af minnsta tilefni. Skáka eignum til og frá undir borðinu. Veita glæpakóngum fyrirgreiðslu en níðast á almenningi.