Vafði Paxman um fingur sér

Punktar

Ólafur Ragnar er mesti sjónhverfingamaður landsins. Vafði Jeremy Paxman hjá BBC um fingur sér. Fjölyrti um þjóðaratkvæðagreiðslur Íslendinga, þótt ég hafi aldrei séð neina slíka. Enda voru ekki einu sinn til lög um slíkt lýðræði fyrr en árið 2010. Paxmann lét Ólaf ljúga sig fullan, rétt eins og þjóðin lætur hann ljúga sig fulla. Íslendingar elska greifa og sölumenn snákaolíu og sjónhverfingamenn meira en nokkra aðra menn. Ef þeir gæla við þjóðrembu, vænisýki og afneitun Íslendinga. Auðvitað eru þeir Ólafur Ragnar Grímsson og Davíð Oddsson einu höfðingjarnir, sem Íslendingar geta elskað.