Jóhanna hótaði vinstri grænum stjórnarslitum, ef þeir sættu sig ekki við umsókn um aðild að Evrópu. Sú aðild yrði okkur góð, en nær aldrei fram að ganga með vinnubrögðum Jóhönnu. Hótunin gerði bara samstarfið torsóttara í ríkisstjórninni. Jóhanna má núna ekki fara að hóta fólki öllu illu, ef það samþykkir ekki IceSave-lögin. Jóhanna hefur misst karisma og kemst ekki lengur upp með hótanir. Þær hafa bara öfug áhrif, fæla fólk frá henni. Íslendingar eru þannig gerðir, að hótanir virka öfugt. Miklu betra er fara mildar að þjóðinni, tala í senn um kosti og galla. Jóhanna hótar of mikið.
