Of miklar væntingar eru um stefnubreytingu í garð Íslands í umhverfi okkar. Fjölmiðlar og stjórnmálamenn á Norðurlöndum eru okkur andsnúnir, jafnvel meira en áður. Litlar líkur eru á norrænum lánum næstu tvo mánuði fram að þjóðaratkvæði. Í Bretlandi þorir Gordon Brown ekki að veita Íslandi afslátt af ótta við kjósendur í kosningum ársins. Hollenzkir pólitíkusar eru harðir eins og fyrri daginn. Af öllum þessum ástæðum er ekki að vænta góðra frétta næstu tvo mánuði. Þótt dálka- og leiðarahöfundar hafi sumir tekið málstað afneitara, er það eins dags vermir. Hann segir lítið á þorranum og góunni.
