Aðildin verður kolfelld

Punktar

Hafi einhvern tíma verið efi um aðild þjóðarinnar að Evrópusambandinu, er hann orðinn að fullri vissu. Sambandið er áhrifamikill aðili að fjárkúgun Bretlands og Hollands vegna IceSave. Samfylkingin vildi IceSave samning vegna draums um aðild, sem seint verður að veruleika. Íslendingar áttuðu sig á fjárkúgun sambandsins og greiða í könnunum atkvæði gegn aðild. Eru líka hættir að trúa barnslega á stuðning Norðurlanda, sem stóðu að kúgun okkar dólganna. Málsefni með og móti aðild verða einskis metin, þegar þjóðrembdir og vænisjúkir Íslendingar í afneitun kjósa um aðild. Evrópa verður kolfelld.