Sagan sýnir, að við hossum hæst þeim pólitíkusum, sem greinilega eru óhæfir. Fremst fer þar gereyðingarvopnið Davíð Oddsson. Næst koma þeir Geir Haarde og Halldór Ásgrímsson. Þar á eftir sést í Árna Mathiesen, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Björgvin Sigurðsson. Við gerðum Birgi Ísleif Gunnarsson, Steingrím Hermannsson og Davíð Oddsson að seðlabankastjórum. Brennuvargar slást við brunaliðið út af afgreiðslu IceSave. Við erum hafðir að athlægi um allan heim. Umheimurinn telur brýnt að refsa okkur fyrir klúður og glæpi. Ástandið væri betra, ef við hættum að kenna útlendingum um mistök okkar.
